Auðkennisnúmer tækisins fundið
Tækið er með einkvæmt auðkennisnúmer. Númer tækisins nefnist IMEI (International
Mobile Equipment Identity). Þú ættir að skrá þetta númer hjá þér og geyma það. Þú gætir
t.d. þurft að nota það þegar þú skráir tækið inn í Xperia™ Care-þjónustuna. Ef tækinu er
stolið geta sum símafyrirtæki einnig notað IMEI-númerið til að koma í veg fyrir að tækið fái
aðgang að símkerfinu í þínu landi eða landsvæði.
Í tækjum með tvö SIM-kort eru tvö IMEI-númer, eitt fyrir hvora SIM-kortarauf.
17
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
IMEI-númer skoðuð á merkjabakkanum
1
Opnaðu hlífina yfir nano SIM-korta- og minniskortaraufinni.
2
Fjarlægðu lokið fyrir SIM/ minniskortabakkann.
3
Dragðu merkjabakkann út með nöglinni. IMEI-númerin eru birt á merkjabakkanum.
Til að sjá IMEI-númerin geturðu líka opnað númeravalið í símanum og slegið inn
*#06#
.
IMEI-númer skoðað/uð í gegnum stillingar tækisins
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann > Staða > IMEI-upplýsingar.