Sony Xperia XA1 Dual SIM - Almennar myndavélarstillingar

background image

Almennar myndavélarstillingar

Yfirlit yfir tökustillingar

Þú getur valið úr úrvali af tökustillingum og myndavélarforritum Strjúktu til vinstri eða

hægri á myndavélarskjánum til að skipta milli þeirra.

Handvirkt
Breyttu myndavélarstillingum á borð við upplausn, hvítjöfnun og ISO handvirkt.

Öflugri sjálfvirkni
Hagræddu stillingunum þínum eftir umhverfi.

Upptökuvél
Lagfærðu stillingarnar handvirkt þannig að þær henti umhverfinu.

Myndavélarforrit
Veldu myndavélarforrit handvirkt.

Frekari upplýsingar um hvernig má taka betri myndir eru á

support.sonymobile.com

.

Myndavélarforrit

AR-áhrif
Taktu myndir eða myndskeið með sýndarumhverfi og persónum.

94

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skapandi áhrif
Bættu áhrifum við myndir eða myndskeið.

Mynd með hljóði
Taktu myndir með bakgrunnshljóði.

Víðmynd
Taktu breið- og víðmyndir.

Timeshift burst
Finndu bestu myndina í myndaröð.

Víðmynd

Þú getur tekið breið- og víðmyndir úr láréttri og lóðréttri stefnu með þvi að halda inni og

færa þig til hliðar.

Víðmynd tekin

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Strjúktu yfir skjáinn til að velja

og veldu síðan .

3

Ýttu á myndavélartakkann og færðu myndavélina hægt og stöðugt í stefnu

hreyfingarinnar sem er sýnd á skjánum.

Sjálfvirk andlitsgreining

Myndavélin nemur sjálfkrafa andlit og auðkennir þau í römmum. Litaður rammi sýnir andlit

sem hefur verið valið fyrir fókus. Fókus er stilltur á það andlit sem er næst miðju

myndavélarinnar. Einnig er hægt að pikka á einn ramma til að velja hvaða andlit ætti að

vera í fókus.

Sjálfvirk taka

Kveiktu á sjálfvirkri töku til að taka myndir sjálfkrafa með einum af valkostunum fyrir

neðan.

Handsmellir

Snúðu lófanum að myndavélinni til að kveikja á tímastillingu og taka sjálfsmyndir í tökustillingunum

Handvirkt

og

Öflugri sjálfvirkni.

Smile Shutter

Notaðu Smile Shutter™ tækni til að taka ljósmyndir af andliti þegar það brosir. Myndavélin greinir allt að fimm

andlit og velur eitt andlit fyrir brosstillingu og sjálfvirkan fókus. Þegar bros greinist á andlitinu tekur myndavélin

sjálfkrafa mynd.

Slökkt

Þegar slökkt er á sjálfvirkri töku geturðu tekið myndir með lokarahnappinum eða myndavélarhnappinum.

Handsmellir valkosturinn er eingöngu í boði til að taka sjálfsmyndir.

Kveikt á Smile Shutter™

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Sjálfvirk myndataka > Smile Shutter.

4

Þegar kveikt er á myndavélinni og kveikt á

Smile Shutter skaltu beina

myndavélinni að myndefninu. Myndavélin velur hvaða andlit á að stilla fókus á.

5

Andlitið birtist inni í litaða rammanum og myndin verður tekin sjálfkrafa um leið og

bros er greint.

6

Ef ekkert bros greinist geturðu ýtt á myndavélartakkann til að taka myndina

handvirkt.

95

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Kveikt á handlokara

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Skiptu í fremri myndavélina með því að pikka á

3

Pikkaðu á .

4

Pikkaðu á

Meira.

5

Finndu og pikkaðu á

Sjálfvirk myndataka > Handsmellir.

Landfræðileg staðsetning myndar vistuð

Kveiktu á eiginleikanum vista staðsetningu til að landmerkja myndirnar þínar - sem vistar

áætlaða landfræðilega staðsetningu þegar myndin er tekin. Landfræðileg staðsetning er

ákvörðuð með þráðlausu kerfi og GPS tækni.
Þegar birtist á myndavélarskjánum er kveikt á vistun staðsetningar en landfræðileg

staðsetning er ekki fundin. Þegar birtist á myndavélarskjánum er kveikt á vistun

staðsetningar og landfræðileg staðsetning er tiltæk, svo hægt er að bæta landfræðilegri

staðsetningu við myndina þína. Þegar hvorugt þessara tákna birtist er slökkt á vistun

staðsetningar.

Kveikt á landmerkingu

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á .

3

Pikkaðu á

Meira og pikkaðu svo á sleðann við hliðina á Vista staðsetningu til að

kveikja eða slökkva á valkostinum.

4

Ef þú ætlar að virkja landmerkingu er beðið um að þú virkir staðsetningarþjónustu,

sé hún ekki þegar virk. Pikkaðu á

Í lagi og svo á Staðsetning-sleðann.

Snertimyndataka

Með snertimyndatöku pikkarðu einfaldlega hvar sem er á skjá myndavélarinnar til að taka

mynd.

Kveikt

Aðeins fremri myndavél

Slökkt

Snert til að stilla

Snertu skjáinn til að velja svæði til að hafa í fókus þegar mynd er tekin.

Bara fókus

Fókus og birtustig

Þessi möguleiki eru eingöngu í boði í

Öflugri sjálfvirkni tökustillingu.

Sjálfvirk forskoðun mynda

Þú getur valið að forskoða myndir sem þú hefur nýlokið við að taka.

Kveikt

Þegar þú hefur tekið mynd geturðu forskoðað hana niðri í hægra horni skjásins í 3 sekúndur.

Aðeins fremri myndavél

Þegar þú hefur tekið mynd með myndavélinni að framan geturðu forskoðað hana niðri í hægra horni skjásins í

3 sekúndur.

Slökkt

Myndin eða myndskeiðið vistast að töku lokinni og engin forskoðun birtist.

Nota hljóðstyrkstakka sem

Hægt er að velja hvernig nota á hljóðstyrkstakkann við myndatöku.

96

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Aðdráttur

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að auka og minnka aðdrátt

Hljóðstyrkur

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að stilla hljóðstyrkinn tilkynninga, hringitóna og tónlistar.

Lokari

Notaðu hljóðstyrkstakkann til að taka myndir.

Hljóð

Þegar þú tekur mynd eða byrjar að taka upp myndskeið gefur myndavélin frá sér smell.

Ef þú notar tímastillinn gefur hún frá sér nokkur píp til merkis um niðurtalningu. Þú getur

haft kveikt eða slökkt á þessum hljóðum.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

Hnitalínur

Þú getur notað hnitalínur sem sjónræna aðstoð við að finna rétta formið á myndinni.

Hnitalínur birtast á skjá myndavélarinnar þegar þú tekur myndir og koma ekki fram á myndinni

sjálfri.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingarstillingar til að ræsa myndavélina þegar skjárinn er læstur.

Einungis ræsa

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina þegar skjárinn er læstur með því að ýta á

myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og smella af

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og tekið mynd sjálfkrafa þegar skjárinn er læstur

með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og taka upp myndskeið

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og hafið að taka upp myndskeið þegar skjárinn

er læstur með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Slökkt

Litur og birtustig stillt

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á >

Litur og birtustig.

3

Dragðu sleðana í þær stöður sem þú vilt til að stilla lit og birtustig.

Þessi stilling er einungis í boði í alhliða sjálfvirkni og upptökustillingu.

Hvítjöfnun, fókus, lýsing og hraði loka

Hvítjöfnun, sem er aðeins í boði í

Handvirkt tökustillingu, stillir litajafnvægið í samræmi við

birtuskilyrði. Þú getur einnig stillt lýsinguna handvirkt á EV-sviðinu -2,0 EV til +2,0 EV. Til

dæmis geturðu aukið birtustig myndarinnar eða minnkað heildarlýsinguna með því að

pikka á plús- eða mínusstjórntakkana þegar hvítjöfnunarstillingartáknið birtist. Hægt er

að stilla fókus og hraða lokara fyrir annað hvort handvirka eða sjálfvirka stillingu.

97

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hvítjöfnun

Sjálfvirk
Stillir litajafnvægið sjálfkrafa.

Ljósapera
Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós
Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta
Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað
Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.

Fókus AF

Stillir fókus sjálfvirkt.

Fókus MF

Stillir fókus handvirkt.

SS auto

Stillir lokuhraða sjálfvirkt.

SS 1/8

Stillir lokuhraða handvirkt.