Sony Xperia XA1 Dual SIM - Myndir og myndskeið skoðuð

background image

Myndir og myndskeið skoðuð

Notaðu albúmsforritið til skoða myndir og spila myndskeið sem þú tókst með

myndavélinni eða til að skoða svipað efni sem þú hefur vistað í tækinu. Allar myndir og

myndskeið birtast í töflu og er raðað í tímaröð.

1

Pikkaðu á til að opna heimavalmynd albúms

2

Skoða valmyndavalkosti

3

Skyggnusýning af öllum myndunum og myndskeiðunum, eða þeim sem þú hefur bætt við í uppáhalds

4

Dragðu vinstri brún skjásins til hægri til að opna heimavalmynd albúms

5

Dagsetning hlutanna í hópnum

6

Pikkaðu á mynd eða myndskeið til að skoða

7

Flettu upp eða niður til að skoða efni

Myndir og myndskeið skoðuð

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Albúm.

3

Pikkaðu á þá mynd eða myndskeið sem þú vilt skoða. Ef beðið er um það skaltu

pikka á .

4

Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að

skoða myndina eða myndskeiðið á undan.

Til að stilla skjáinn á að snúast sjálfkrafa þegar honum er snúið á hlið pikkarðu á

Snúa innihaldi

skjásins undir Stillingar > Skjár > Þegar tækinu er snúið.

Ekki er víst að albúmsforritið styðji öll skráarsnið. Þú getur lesið þér betur til um studd

skráarsnið og notkun margmiðlunarskráa (hljóð, myndir og myndskeið) með því að sækja skjal

um tækið þitt í

www.sonymobile.com/support/

.

Stærð smámynda breytt

Þegar smámyndir mynda og myndskeiða eru skoðaðar í albúmi skaltu glenna tvo

fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða klípa tvo fingur saman til að minnka aðdrátt.

Aðdráttur notaður á mynd

Þegar þú ert að skoða mynd glennir þú tvo fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða klípur

tvo fingur saman til að minnka aðdrátt.

Myndir sýndar í skyggnusýningu

1

Þegar þú skoðar mynd pikkarðu á skjáinn til að birta tækjastikur, pikkaðu síðan á

>

Skyggnusýning til að byrja að spila myndir í albúminu.

2

Pikkaðu á mynd til að ljúka skyggnusýningunni.

103

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndskeið spilað

1

Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í Albúmi.

2

Pikkaðu á .

3

Ef spilunarstjórntakkarnir birtist ekki pikkarðu á skjáinn til að sýna þá. Til að fela

stjórntakkana pikkarðu aftur á skjáinn.

Hlé á myndskeiði

1

Þegar myndskeið er spilað pikkarðu á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Pikkaðu á .

Spólað áfram eða aftur á bak í myndskeiði

1

Þegar myndskeið er spilað pikkarðu á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Dragðu framvindustikumerkið til vinstri til að spóla til baka eða til hægri til að spóla

áfram.

Hljóðstyrkur myndskeiðs stilltur

Ýttu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður.