Tekið á móti símtölum
Ef þú tekur við símtali þegar tækið er í svefnstillingu eða skjárinn er læstur opnast
símaforritið í fullu skjásniði með SIM-tákni sem gefur til kynna til hvors SIM-kortsins
símtalið er. Ef hringt er í þig á meðan síminn er virkur birtist það sem fljótandi tilkynning,
þ.e. í smækkuðum glugga sem flýtur fyrir ofan skjáinn sem er opinn, með SIM1 eða SIM2
sem gefur til kynna til hvors SIM-kortsins símtalið er. Þegar svona tilkynning kemur getur
þú valið að svara símtalinu og opna símaforritaskjáinn eða þú getur hafnað símtalinu og
verið á núverandi skjá.
Símtali svarað þegar skjárinn er óvirkur
•
Þegar símtal berst dregur þú til hægri.
Símtali svarað þegar skjárinn er virkur
•
Þegar símtal berst pikkarðu á
SVARA í tilkynningunni sem birtist efst á skjánum.
Í staðinn fyrir að svara símtalinu geturðu opnað aðalforritaskjá símans með því að pikka á
tilkynningagluggann. Með þessari aðferð bjóðast fleiri símtalsvalkostir. Til dæmis er hægt að
hafna símtalinu með skilaboðum.
Símtali hafnað þegar skjárinn er óvirkur
•
Þegar símtal berst dregur þú til vinstri.
Símtali hafnað þegar skjárinn er virkur
•
Þegar símtal berst pikkarðu á
HAFNA í tilkynningunni sem birtist efst á skjánum.
Í staðinn fyrir að hafna símtalinu geturðu farið á aðalforritaskjá símans með því að pikka á
tilkynningargluggann. Með því að nota þessa aðferð færðu fleiri valkosti til að vinna með
símtalið. Það er t.d. hægt að hafna símtalinu með skilaboðum.
Slökkt á hringitóni fyrir móttekið símtal
•
Þegar þú færð símtal, ýtirðu á hljóðstyrkstakkann.
68
Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.
Símtali hafnað með textaskilaboðum
Þú getur hafnað símtali með textaskilaboðum sem eru send sjálfkrafa til hringjandans og
vistuð í samtalssögunni við tengiliðinn.
Þú getur valið úr fjölda fyrirfram ákveðinna skilaboða í tækinu eða búið til eigin skilaboð.
Þú getur einnig búið til sérsniðin skilaboð með því að breyta þeim sem fyrir eru.
Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar slökkt er á skjánum
1
Þegar símtal berst skaltu pikka á
SVARVALKOSTIR.
2
Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á
Skrifa ný skilaboð.
Símtali hafnað með textaskilaboðum þegar kveikt er á skjánum
1
Þegar símtal berst pikkarðu á efri hluta tilkynningagluggans þar sem símanúmer
eða nafn tengiliðar birtist.
2
Pikkaðu á
SVARVALKOSTIR.
3
Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á
Skrifa ný skilaboð.
Öðru símtali hafnað með skilaboðum
1
Þegar þú heyrir endurtekið píp meðan á símtali stendur skaltu pikka á
SVARVALKOSTIR.
2
Veldu forstillt skilaboð eða pikkaðu á
Skrifa ný skilaboð.
Textaskilaboðum sem notuð eru til að hafna símtali breytt
1
Á
Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Símtal, veldu SIM-kort og pikkaðu svo á Hafna
símtali með skilaboðum.
3
Pikkaðu á skilaboðin sem þú vilt breyta og breyttu því sem þarf.
4
Pikkaðu á
Í lagi.